Tvíburar tónlistarhjónanna Beyoncé og Jay-Z urðu fjögurra ára á sunnudaginn. Tónlistarkonan óskar þeim Rumi og Sir til hamingju með afmælið á heimasíðu sinni. Beyoncé eignaðist tvíbura hinn 13. júní 2017.
„Hvað er betra en ein gjöf ... tvær,“ skrifaði stjarnan á heimasíðu sína og átti þá við að hún eignaðist ekki bara eitt barn heldur tvö. „Til hamingju með afmælin Rumi og Sir.“
„Ég var 99 kíló daginn sem ég fæddi Rumi og Sir. Ég var bólgin af völdum háþrýstings og hafði verið í rúminu í yfir mánuð. Heilsa mín og barnanna var í hættu svo ég þurfti að fara í bráðakeisara,“ sagði Beyoncé í Vogue árið 2018. Hún var lengi að jafna sig eftir keisaraskurðinn.
Byeoncé á þrjú börn með eiginmanni sínum, Jay-Z, elsta barn þeirra hin níu ára gamla Blue Ivy. Beyoncé missti einnig fóstur árið 2010 eða 2011.