Með hringa með nafni dóttur sinnar

Alexandra Helga og Gylfi Þór eiga dóttur sem heitir Melrós …
Alexandra Helga og Gylfi Þór eiga dóttur sem heitir Melrós Mía. skjáskot/Instagram

Hjónin Alexandra Helga Ívarsdóttir náttúrukokkur og Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður eignuðust dótturina Melrós Míu í byrjun maí. Nafn stúlkunnar hefur vakið mikla athygli enda sjaldgæft. Þau eru nú búin að útbúa hringa með nafni dóttur sinnar. 

Alexandra birti mynd á instagramsíðu sinni af hægri hendi sem hélt utan um litla dúllulega fætur ungbarns. „Melrós Mía“ stendur á gullhring annars vegar og silfurhring hins vegar. Auk þess voru smærri silfurhringar á fingrinum. 

Dóttir þeirra Alexöndru og Gylfa fékk nafnið Melrós Mía en eins og barnavefur mbl.is greindi frá í maí er hún sú eina sem ber nafnið Melrós Mía. Aðeins bera fjór­ar aðrar kon­ur á Íslandi nafnið Mel­rós sem fyrra eig­in­nafn sam­kvæmt upp­lýs­ing­um Hag­stofu Íslands frá 1. janú­ar árið 2019. Þá bera tvær aðrar nafnið sem seinna eig­in­nafn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda