Leikkonan og fjölmiðlakonan Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir gaf syni sínum nafn um helgina. Litli drengurinn fékk nafnið Birgir Galdur Ísgerðarson.
Birgir litli er fyrsta barn móður sinnar, en hann kom í heiminn hinn 5. júí síðastliðinn.
Ísgerður á Birgi litla ein en hún fór í glasafrjóvgun. Í viðtölum í vor sagðist hún alltaf hafa haft þennan möguleika á bak við eyrað ef hún myndi ekki finna ástina. „Fjölskyldur eru alls konar og mín sem sagt byrjar bara á okkur 2 og svo sjáum við til hvort fleiri bætist við síðar,“ skrifar Ísgerður á Facebook í vor.