Kylie Jenner búin að eiga

Travis Scott, Stormi Webster og Kylie Jenner.
Travis Scott, Stormi Webster og Kylie Jenner. Ljósmynd/AFP

Áhrifavaldurinn og raunveruleikastjarnan Kylie Jenner eignaðist sitt annað barn á dögunum með kærasta sínum, rapparanum Travis Scott.

Jenner birti færslu á Instagram um liðna helgi þar sem hún tilkynnti um komu barnsins og notaðist við lyndistákn sem sýndi blátt hjarta. Heimildir fréttamiðilsins Page Six herma að þeim hafi fæðst lítill drengur hinn 2. febrúar síðastliðinn. Það er því mikið um töluna tvo að ræða og afmælisdagurinn frekar flottur; 2.2.22.

Kylie Jenner og Travis Scott eiga fyrir dótturina Stormi Webster sem er nýorðin fjögurra ára gömul, aðeins degi á undan litla systkininu, en Stormi fæddist 1. febrúar 2018. Mun hún að öllum líkindum vera flott í nýju hlutverki sem stóra systir.

 Hér má sjá Instagram-færslu Jenners.

Kylie Jenner tilkynnti um komu barnsins á Instagram um liðna …
Kylie Jenner tilkynnti um komu barnsins á Instagram um liðna helgi. Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda