Barnsfeðurnir sameinast gegn Chyna

Blac Chyna þurfti að fækka í bílaflotanum. Hún á börn …
Blac Chyna þurfti að fækka í bílaflotanum. Hún á börn með Tyga og Rob Kardashian. Samsett mynd

Raunveruleikastjarnan Rob Kardashian og rapparinn Tyga greindu frá því í vikunni að þeir borgi með börnunum sínum sem þeir eiga með fyrirsætunni Blac Chyna. Chyna hélt því fram að hún fengi engan fjárhagslegan stuðning frá barnsfeðrum sínum. 

Chyna á soninn King Cairo sem er níu ára með Tyga og dótturina Dream með Kardashian en Dream er fimm ára. „Í gær þurfti ég að losa mig við þrjá af bílunum mínum,“ tísti Chyna að því fram kemur á vef People. Hún þurfti að færa þessa fórn meðal annars vegna þess að hún er einstæð móðir og sagðist hún ekki fá neinn stuðning.

Þeir Tyga og Kardashian voru greinilega ósáttir við ummæli Chyna og ákváðu að greina frá hinu rétta. 

Kardashain tísti því að hann borgaði 37 þúsund Bandaríkjadali eða rúmlega 4,7 milljónir í skólagjöld fyrir dóttur sína. „Ég sé um alla reikninga vegna heilbrigðisþjónustu. Ég borga fyrir allt sem hún gerir fyrir utan skóla. Ég er með dóttur mína frá þriðjudegi til laugardags. Af hverju ætti ég að borga meðlag,“ skrifaði Kardashian. 

Tyga sem á eldra barn sagðist borga 40 þúsund Bandaríkjadali ári í skólagjöld eða um rúmlega fimm milljónir. Hann sagði einnig að sonur hans væri hjá honum frá mánudegi til laugardags. „Af hverju ætti ég að borga meðlag,“ skrifaði hann rétt eins og Kardashian. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert