Fór í þungunarrof á síðasta ári

Tónlistarkonan Phoebe Bridgers fór í þungunarrof á síðasta ári.
Tónlistarkonan Phoebe Bridgers fór í þungunarrof á síðasta ári. AFP

Tónlistarkonan Phoebe Bridgers fór í þungunarrof þegar hún var á tónleikaferðalagi á síðasta ári. Bridgers opnaði sig um þungunarrofið í kjölfar frétta þess efnis að Hæstiréttur Bandaríkjanna hyggist mögulega snúa við lögum um rétt til þungunarrofs í Bandaríkjunum.

„Ég fór á heilsugæslu þar sem þungunarrof er framkvæmt og fékk þungunarrofstöflu. Það var auðvelt. Öll eiga að hafa slíkt aðgengi,“ skrifaði Bridgers á Instagram en hún fór í þungunarrof í október á síðasta ári.

Bridgers greindi ekki frá því með hverjum hún átti von á barni en tveimur mánuðum seinna opinberaði hún samband sitt við leikarann Paul Mescal. 

Í gær var áliti meirihluta dómara við Hæstarétt Bandaríkjanna lekið í gær. Þar kom fram að dómararnir teldu hæstaréttardóminn Roe gegn Wade vera rangan. Dómurinn hefur tryggt réttinn til þungunarrofs en hann féll árið 1973. Í 98 blaðsíðna áliti rekja dómararnir hvernig þau telja dóminn vera rangan og leggja til að hann verði ógildur. 

Fréttirnar hafa farið um sem eldur í sinu og hefur ríkisstjóri Oklahoma-ríkis nú þegar skrifað undir hörð lög um þungunarrof.

Skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Linda Sigríður Baldvinsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Guðrún Kristjánsdóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Lára Guðrún Sigurðardóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Hildur Jakobína Gísladóttir
Júlía heilsumarkþjálfi
Júlía heilsumarkþjálfi

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál