Mandy Moore á von á öðru barni

Mandy Moore er spennt að verða tveggja barna móðir.
Mandy Moore er spennt að verða tveggja barna móðir. AFP/Rich Fury

Söng- og leikkonan Mandy Moore og eiginmaður hennar, Taylor Goldsmith, eiga von á sínu öðru barni. Parið greindi frá gleðifréttunum á Instagram fyrr í dag.

Ekki er langt um liðið síðan hjónin eignuðust soninn Gus, sem kom í heiminn fyrir 16 mánuðum síðan. 

Moore og Goldsmith fóru fyrst að stinga saman nefjum árið 2017 en gengu síðan í það heilaga í nóvember 2018. Moore var áður gift tónlistarmanninum Ryan Adams en þau skildu árið 2016. 

„Einum merkis kafla í lífinu líkur og nýr kafli tekur við. Kaflinn tveggja barna móðir er að hefjast. Við erum spennt og virkilega þakklát,“ sagði Moore þegar hún tilkynnti um væntanlega viðbót fjölskyldunnar. 

View this post on Instagram

A post shared by Mandy Moore (@mandymooremm)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda