Turner og Jonas eignuðust aðra stúlku

Eiguðust sitt annað barn fyrr í mánuðnum
Eiguðust sitt annað barn fyrr í mánuðnum AFP

Leikkonan Sophie Turner og söngvarinn Joe Jonas hafa eignast annað barn sitt. Þau eignuðust stúlku en fyrir eiga þau eina dóttur.

Stúlkan litla kom í heiminn í Miami í Flórídaríki í Bandaríkjunum fyrr í mánuðnum og eru þau hjónin komin með dóttur sína heim af spítalanum.

Sjörnuhjónin gengu í það heil­aga í Las Vegas vorið 2019 og héldu svo stórt brúðkaup í Frakklandi seinna sama ár.

Ári síðar, eða í júlí 2020, urðu þau foreldrar í fyrsta sinn þegar dóttirin Willa kom í heiminn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert