Kennir börnunum um skilnaðinn

Rupert Murdoch og Jerry Hall voru gift í sex ár. …
Rupert Murdoch og Jerry Hall voru gift í sex ár. Hann er 91 árs en hún 66 ára. AFP

Það kom mörgum á óvart þegar Jerry Hall tilkynnti skilnað sinn við fjölmiðlamógúlinn Rupert Murdoch. Hall og Murdoch höfðu verið gift í sex ár og var þetta fjórða hjónaband Murdochs.

Samkvæmt heimildum The Daily Mail á Hall að hafa sagt vini sínum að hún væri í ástarsorg. „Ég elska hann enn. Ég er eyðilögð.“

Hall kennir börnum Murdochs um skilnaðinn og er afar sár. Skilnaðurinn kom henni í opna skjöldu en aðdragandinn var enginn. Murdoch sendi henni tölvupóst þar sem hann tilkynnti henni að hjónabandinu væri lokið og hún skyldi framvegis hafa samband við lögfræðinga hans.

Sagt er að sonur Murdochs, Lachlan, hafi átt stóran þátt í að telja föður sinn á að skilja við Hall og sá hann um alla herkænsku hvað lögfræðinga og fjölmiðla varðaði.

Stýrði því hverjir fengu að hitta hann

Talið er að ágreiningur hafi komið upp milli Hall og barna Murdochs í miðjum heimsfaraldri. Hún hafi viljað stjórna því hverjir fengju að umgangast hann af ótta við að hann fengi kórónuveiruna. Hún kallaði sig í gríni Covid-lögguna. Þetta fór illa í börn hans sem töldu hana vera að einangra hann frá fjölskyldunni.

„Hún kennir börnum hans um hvernig fór fyrir hjónabandi þeirra. Þau beittu sínum áhrifum í að fá hann til að skilja við hana. Þau greinilega treystu henni ekki,“ segir heimildarmaður.

Þá herma heimildir að fyrir skilnaðinn hafi farið fram viðræður um hvað Hall myndi fá í sinn hlut þegar Murdoch félli frá og margir innan fjölskyldunnar vildu að hún fengi ekkert enda hafði kaupmáli verið gerður á sínum tíma.

Verulega sár 

„Jerry er verulega sár og heldur því fram að þetta hafi komið sér algjörlega á óvart. Einn daginn voru þau að skipuleggja sumarfríið sitt saman í London og þann næsta fær hún tölvupóst um að tala við lögfræðingana. Henni sárnar að fólk haldi að hún hafi bara verið á eftir peningunum hans. Hún er sannfærð um að börn hans hafi unnið gegn henni,“ segir vinur hennar.

Fjölmiðlaeigandinn Rupert Murdoch sést hér á milli tveggja sona sinna, …
Fjölmiðlaeigandinn Rupert Murdoch sést hér á milli tveggja sona sinna, Lachlan og James. Sagt er að þættirnir Succession séu að einhverju leyti byggðir á Murdoch fjölskyldunni. AFP
Rupert Murdoch er fáránlega ríkur.
Rupert Murdoch er fáránlega ríkur. DENIS BALIBOUSE
Jerry Hall og Rupert Murdoch á góðri stundu. Hall var …
Jerry Hall og Rupert Murdoch á góðri stundu. Hall var afar hamingjusöm í hjónabandinu og er eyðilögð yfir endalokum þess. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda