Tilbúin að eignast barn eftir missir

Jessie J á MOBO verðlaunahátíðinni í London.
Jessie J á MOBO verðlaunahátíðinni í London. AFP

Söngkonan Jessie J segist vera að reyna að eignast barn á ný en hún missti fóstur á síðasta ári. Hún segir að líkaminn hennar sé að breytast og hún sé ánægð með það. 

Hin 34 ára gamla Íslans­vin­kona hef­ur talað op­in­skátt um glímu sína við ófrjósemi. Hún var greind með en­dómetríósu árið 2014 og sögðu lækn­ar henni að hún gæti þurft að fara í legnám. Hún hefur einnig verið opin varðandi fósturmissinn.

„Ég er búin að þyngjast og ég er ekki búin að fara í ræktina mjög lengi, en mér líður samt mjög vel. Ég er ekki 17 ára lengur og mig langar til að búa til barn og ég er að reyna það og líkaminn er að breytast í kjölfarið,“ sagði söngkonan á tónleikum í London um helgina.

Hún segist loksins vera komin á stað þar sem henni líði vel og sé ekki enn þá týnd í Hollywood eins og hún er búin að vera síðustu ár. Hún segist vera hamingjusöm og spennt fyrir framtíðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert