Íslandsvinkona á von á barni

Tom Pelphrey og Kaley Cuoco eiga von á barni.
Tom Pelphrey og Kaley Cuoco eiga von á barni. Samsett mynd

Leikkonan Kaley Cuoco og kærasti hennar Tom Pelphrey eiga von á sínu fyrsta barni saman. Parið á von á lítilli stúlku á næsta ári. 

Cuoco, sem heimsótti Ísland í desember á síðasta ári þegar tökur á annarri þáttaröð The Flight Attendant var tekin upp, greindi frá gleðifréttunum á Instagram í gær.

Parið greindi einnig frá kyni barnsins með skemmtilegum hætti, en þau skáru í köku sem inn í var bleikt krem. 

Cuoco greindi frá því í maí á síðasta ári að þau Pelphrey væru saman og mættu þau saman á Emmy-verðlaunahátíðina stuttu seinna. 

View this post on Instagram

A post shared by Kaley Cuoco (@kaleycuoco)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert