Tók á móti ellefta barninu

Abby De La Rosa og Nick Cannon hafa nú tekið …
Abby De La Rosa og Nick Cannon hafa nú tekið á móti sínu þriðja barni saman. Samsett mynd

Plötusnúðurinn og fyrirsætan Abby De La Rosa eignaðist um helgina sitt þriðja barn með grínistanum Nick Cannon.

Stúlkan, sem hefur þegar fengið nafnið Beautiful Zeppelin Cannon, er ellefta barn Cannons, en rúmur mánuður er liðinn frá því Cannon eignaðist tíunda barnið sitt með fyrirsætunni Brittany Bell. 

Cannon deildi fallegu myndskeiði á instagram þar sem hann deildi gleðifregnunum með fylgjendum sínum. Í færslunni hrósaði hann La Rosa fyrir dugnað hennar og þá óeigingjörnu ást sem hún veitir börnum þeirra, en fyrir eiga La Rosa og Cannon saman tvíburana Zion og Zillion sem komu í heiminn í júní 2021. 

View this post on Instagram

A post shared by NICK CANNON (@nickcannon)

Cannon hefur verið áberandi í fjölmiðlum í ár, en hann hefur þegar eignast fjögur börn með fjórum mismunandi konum og er það tólfta á leiðinni með fimmtu konunni, fyrirsætunni Alyssu Scott. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert