Raunveruleikastjarnan og athafnakonan Kylie Jenner neitar að leyfa móðurhlutverkinu að koma í veg fyrir kynþokka sinn, en hún hefur verið óhrædd við að sýna líkama sinn eftir fæðingu drengjanna sinna tveggja. Kylie, sem er 25 ára gömul, eignaðist annað barn sitt með kærasta sínum, rapparanum Travis Scott, fyrir rúmum níu mánuðum.
„Ég er enn mamma, en þetta eru árin þar sem ég á að vera nakin með brjóstin og rassinn á mér út í loftið,“ sagði Kylie í raunveruleikaþáttunum The Kardashians. Í þættinum var Kylie að undirbúa sig fyrir Billboard-verðlaunin í Las Vegas.
Hins vegar var lítið um nekt hjá Kylie á verðlaunahátíðinni, en kjóllinn sem varð að lokum fyrir valinu var grár, þröngur og náði frá gólfi og upp í háls. Hann vakti þó mikla athygli þar sem útlínur hans þóttu minna á nakinn líkamann, en kjóllinn er frá tískuhúsinu Balmain.
Kardashian-Jenner-systurnar eru þekktar fyrir að vera mjög uppteknar af útlitinu. Kylie opnaði sig þó í sumar um líkamsbreytingarnar sem fylgja meðgöngu og sagðist hafa verið sáttari við líkamann á seinni meðgöngunni.
„Þetta er svo áhugavert. Ég held að það sé mun meira áfall að sjá líkamann breytast svona mikið á fyrstu meðgöngunni. Í seinna skiptið leið mér alls ekki þannig,“ sagði Kylie. „Ég var miklu minna stressuð yfir þyngdinni og hvernig ég liti út,“ bætti hún við.