Hörður og Hildur eiga von á barni

Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Hörður Ægisson einn af stofnendum Innherja á Vísi.is og Hildur Þórarinsdóttir lögmaður á Juris eiga von á barni. Hildur greindi frá því á Instagram að von væri á barni um leið og hún óskaði eiginmanni sínum til hamingju með afmælið. 

Hörður og Hildur gengu í hjónaband í maí á síðasta ári í Dómkirkjunni og slógu svo upp veislu á eftir í Hörpu. 

Barnavefurinn á mbl.is óskar þeim hjartanlega til hamingju með óléttuna! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert