Adam og Ástrós gáfu dótturinni nafn

Adam Helgason og Ástrós Traustadóttir gáfu dóttur sinni nafn síðastliðna …
Adam Helgason og Ástrós Traustadóttir gáfu dóttur sinni nafn síðastliðna helgi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Adam Karl Helgason framkvæmdastjóri Zolo og dansarinn og áhrifavaldurinn Ástrós Traustadóttir gáfu dóttur sinni nafn síðastliðna helgi. 

Dóttir Adams og Ástrósar kom í heiminn hinn 4. febrúar síðastliðinn og er fyrsta barn parsins saman, en fyrir á Adam eina dóttur. 

Stúlkan fékk nafnið Nóra Náð, en parið greindi frá nafninu með sameiginlegri færslu á Instagram.

Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert