Katrín Halldóra á von á dóttur

Leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir á von á sínu öðru barni …
Leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir á von á sínu öðru barni í sumar. Samsett mynd

Leikkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og tónlistarmaðurinn Hallgrímur Jón Hallgrímsson eiga von á sínu öðru barni, dóttur sem er væntanleg í heiminn í júlí. 

Katrínu ættu flestir að kannast við úr leikhúsinu en hún fer um þessar mundir með hlutverk Rósalindar í sýningu Þjóðleikhússins, Hvað sem þið viljið. Hallgrímur er trommari í hljómsveitinni Sólstöfum.

Katrín tilkynnti fréttirnar á Instagram og sagði þar að þau ættu von á lítilli stúlku í júlímánuði. Þetta er annað barn þeirra saman, en þau eignuðust drenginn Stíg, sumarið 2020. Fyrir á Hallgrímur einn son, Óðin.  

Barnavefurinn óskar fjölskyldunni innilega til hamingju! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda