Eignaðist tvíbura 48 ára

Leikkonan Hilary Swank tilkynnti um fæðingu tvíbura sinna á páskadag.
Leikkonan Hilary Swank tilkynnti um fæðingu tvíbura sinna á páskadag. Samsett mynd

Tvíburar stórleikkonunnar Hilary Swank og eiginmanns hennar, Philip Schneider, eru komnir í heiminn. Swank tilkynnti á páskadag að börnin, strákur og stelpa, væru fædd. 

Leikkonan deildi mynd á samfélagsmiðlinum Instagram þar sem hún heldur á tvíburunum, sem eru fyrstu börn foreldra sinna, og horfir út á sólsetrið. Við færsluna skrifaði hún: „Þetta var ekki auðvelt en svo sannarlega þess virði. Gleðilega páska! Kveðja frá himnaríki.“

Swank, sem er 48 ára, gaf hvorki upp nöfn barnanna né fæðingardag. 

View this post on Instagram

A post shared by Hilary Swank (@hilaryswank)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert