Fimleikakonan Kolbrún Þöll Þorradóttir á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum, Ísaki Óla Helgasyni.
Parið tilkynnti gleðifregnirnar með sameiginlegri færslu á Instagram. „Svo spennt fyrir nýju hlutverki í október,“ skrifuðu þau við færsluna og birtu fallega mynd af sér og sónarmynd.
Kolbrún Þöll er með fremstu hópfimleikakonum landsins og æfir með Stjörnunni í Garðabæ. Hún hefur verið lykilhlekkur í landsliðinu síðustu ár en lenti í meiðslum í september síðastliðnum þegar hún sleit hásin degi fyrir brottför á Evrópumótið í hópfimleikum í Lúxemborg.
Barnavefurinn óskar þeim innilega til hamingju!