Í engu sambandi við syni sína

Britney Spears missti forræði yfir sonum sínum árið 2008.
Britney Spears missti forræði yfir sonum sínum árið 2008. Samsett mynd

Fyrrverandi poppstjarnan Britney Spears hefur samkvæmt áreiðanlegum heimildum ekki séð táningssyni sína í meira en eitt ár. Synir stjörnunnar fjölluðu opinberlega um skringilega hegðun móður sinnar á samfélagsmiðlum á síðasta ári og gagnrýndu sömuleiðis uppeldisgetu Spears og á það að hafa fyllt mælinn, beggja vegna. Samband mæðginanna var þó byrjað að erfiða vel fyrir þann tíma. 

„Í lok sumars 2022, var spennan orðin það mikil að strákarnir gátu vart svarað textaskilaboðum frá henni. Og hún var mjög reið,“ sagði Katie Hayes, framleiðandi TMZ, í heimildarmyndinni TMZ Investigates: Britney Spears: The Price of Freedom.

Á erfitt með að dreifa ástinni

„Ég held að mamma hafi átt í erfiðleikum með að veita okkur báðum athygli og dreifa ástinni jafnt; ég held að hún hafi ekki náð að sýna Preston næga ást og það lætur mér líða mjög illa,“ sagði Jayden, yngri sonur Spears, í viðtali við Daily Mail á sínum tíma. Og að sögn föður drengjanna, Kevin Federline, þá hafi ekki hjálpað málum að Spears væri reglulega að flagga hálfnöktum eða nöktum líkama sínum á samfélagsmiðlum. 

Stuttu eftir að Jayden ræddi opinberlega við Daily Mail um móður sína og erfiðleika síðustu ára, skrifaði Spears langa Instagram-færslu og lýsti því yfir hversu sorgmædd hún væri að heyra hann segja eftirfarandi: „Það hryggir mig að heyra að ég standist ekki væntingar sonar míns sem móðir hans. Kannski getum við hist einn daginn augliti til auglitis og rætt samband okkar opinskátt!!!“

Spears eignaðist Preston og Jayden með fyrrverandi eiginmanni sínum, Kevin Federline, en þau voru gift frá 2004 til 2007. Spears missti forræði yfir sonum sínum einu ári eftir skilnaðinn, 2008.

View this post on Instagram

A post shared by River Red (@britneyspears)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert