Fjölskylda Tinnu Alavis stækkar

Tinna Alavis ásamt dóttur sinni Ísabellu árið 2018.
Tinna Alavis ásamt dóttur sinni Ísabellu árið 2018. Ljósmynd/Tinna Alavis

Áhrifavaldurinn Tinna Alavis á von á sínu öðru barni, en fyrir á hún eina dóttur, Ísabellu Birtu, með Unnari Bergþórssyni. 

Tinna hefur gert það gott sem bloggari síðustu ár, en hún varð fyrst þekkt þegar hún keppti í Ungfrú Ísland árið 2003 og hafnaði í öðru sæti.

Tinna deildi gleðifregnunum með fylgjendum sínum á Instagram þar sem hún birti fallega mynd af dóttur sinni Ísabellu, sem er níu ára gömul. Á myndunum heldur Ísabella á sónarmynd.

Barnavefurinn óskar fjölskyldunni innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Tinna Alavis (@alavis.is)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert