Settur dagur handan við hornið

Hjónin eiga von á sínu öðru barni.
Hjónin eiga von á sínu öðru barni. Samsett mynd

Game of Thrones–stjarnan Rose Leslie geislaði í göngutúr með systur sinni í Lundúnum nú á dögunum. Breska leikkonan, 36 ára, á von á sínu öðru barni með eiginmanni sínum, Kit Harington sem flestir þekkja sem Jon Snow. 

Leslie var farðalaus og afslöppuð á myndum sem birtust á DailyMail, en hún gekk um götur borgarinnar ásamt systur sinni, Portiu og virðist sem leikkonan sé að nálgast settan dag. 

Leslie og Harington kynntust við tökur á Game of Thrones og giftu sig í júní 2018. Hjónin reyna að halda sig utan sviðsljóssins þegar þau eru ekki að sinna starfi sínu sem kvikmyndastjörnur og er hvorugt þeirra á samfélagsmiðlum. Hjónin eignuðust son snemma árs 2021 og hafa ekki greint opinberlega frá nafni hans. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert