Birnir og Vaka eiga von á barni

Birnir Sigurðarson og Vaka Njálsdóttir eiga von á barni.
Birnir Sigurðarson og Vaka Njálsdóttir eiga von á barni. Ljósmynd/Skjáskot Instagram

Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og Vaka Njálsdóttir, sem vinnur í viðskiptaþróun fyrir Nova, eiga von á barni. Von er á barninu í október. Þau greindu frá því á Instagram. 

Parið hnaut um hvort annað í kórónuveirunni og hefur verið óaðskilið síðan. 

Birnir hefur verið að gera framúrskarandi hluti á tónlistarsviðinu en hann skaust fram á stjörnuhimininn 2016. Hann hefur síðan þá gefið út hvern smellinn á fætur öðrum. Vaka var með hlaðvarpið Þegar ég verð stór þegar þau Birnir hittust fyrst. Þegar hún bauð honum í afmælið sitt fóru hjónin að snúast. Í dag sér Vaka um fríðindaklúbbinn og Nova appið hjá símafyrirtækinu. Birnir og Vaka voru gestir í Betri helmingnum með Ása en hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

Fjölskyldan á mbl.is óskar þeim til hamingju með óléttuna! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert