Hjónin Kourtney Kardashian og Travis Barker komu fólki verulega á óvart í síðustu viku þegar þau greindu frá því að þau ættu von á barni. Kardashian hélt uppi stóru skilti með áletruninni: „Travis, ég er ófrísk“ á tónleikum trommuleikarans.
Hjónin fögnuðu gleðitíðindunum ásamt vinum og vandamönnum um helgina og greindu frá kyni hins ófædda barns og það með sannkölluðum rokkstjörnuhætti.
Þegar gestir voru búnir að gæða sér á ljúffengum vegan-veisluréttum þá var komið að stóru stundinni. Kardashian–systirin settist í kjöltu Barker, sem sat sjálfur við trommusettið og trommaði þar til að konfetti–sprengja skaut bláu skrauti yfir allt og alla og tilkynnti öllum að lítill drengur væri á leiðinni.
Kardashian og Barker byrjuðu saman árið 2020, en eftir nokkra mánaða samband byrjaði parið að láta reyna á barneignir. Þau trúlofuðu sig í október árið 2021 og gengu í hjónaband í Portofino á Suður-Ítalíu í maí 2022.
Þetta er fyrsta hjónaband Kardashian, en hún var í langtímasamband með Scott Disick og á með honum þrjú börn. Barker er tvískilinn og er þetta þriðja hjónaband trommuleikarans. Hann á tvö börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Shönnu Moekler.