Sonur Ingunnar og Svavars kominn í heiminn

Ingunn Sigurðardóttir er orðin mamma.
Ingunn Sigurðardóttir er orðin mamma. Ljósmynd/Elísabet Blöndal

Förðunarfræðingurinn Ingunn Sigurðardóttir, eig­andi Reykja­vík Makeup School og HI beauty, er orðin mamma. Sonur hennar og Svavars Guðjónssonar kom í heiminn 24. júní. 

„Fullkomni sonur okkar kom í heiminn 24.06.23. Augnablik sem við munum aldrei gleyma. Ég er ótrúlega stoltur af Ingunni minni. Hún hefur staðið sig svo vel frá því hún pissaði á þungunarprófið. Á fæðingardeginum sýndi hún mér andlegan og líkamlegan styrk sem ég hef ekki séð áður. Þú ert hetja ástin mín,“ sagði Svavar á Facebook-síðu sinni. 

Fjölskyldan á mbl.is óskar Ingunni og Svavari til hamingju með soninn! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert