Game of Thrones-barnið fætt

Rose Leslie og Kit Harington buðu sitt annað barn velkomið …
Rose Leslie og Kit Harington buðu sitt annað barn velkomið nú á dögunum. AFP

Leikarahjónin Kit Harington og Rose Leslie hafa eignast sitt annað barn. Þau eignuðust stúlku en fyrir eiga hjónin tveggja ára gamlan dreng.

Stjörnuhjónin kynntust við gerð þáttanna Game of Thrones árið 2011, en eins og flestir vita fór Harington með hlutverk hins vinsæla Jon Snow. Leslie lék ástkonu hans Ygritte.

Parið gekk í það heilaga árið 2018 og eignuðust son snemma árs 2021, en hjónin hafa aldrei greint opinberlega frá nafni drengsins.

Harington og Leslie kjósa að halda sig frá samfélagsmiðlum og utan sviðsljóssins þegar kostur gefst á.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert