Hörður og Hildur eignuðust dreng

Hörður Ægisson og Hildur Þórarinsdóttir eignuðust dreng 4. júlí.
Hörður Ægisson og Hildur Þórarinsdóttir eignuðust dreng 4. júlí. Ljósmynd/Eygló Gísladóttir

Hörður Ægis­son einn af stofn­end­um Inn­herja á Vísi.is og Hild­ur Þór­ar­ins­dótt­ir lögmaður á Jur­is, eignuðust son þann 4. júlí. Hörður greindi frá þessu á Facebook-síðu sinni og segir að þau gætu ekki verið hamingjusamari. Drengurinn er fyrsta barn Harðar en Hildur átti son og dóttur fyrir. 

Hörður og Hildur gengu í hjónaband fyrir rúmlega ári síðan. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni og svo var slegið upp veislu á eftir í Hörpu. 

mbl.is óskar Herði og Hildi til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert