Tekur sér hlé frá Hollywood

Emily Blunt ætlar að njóta tímans með dætrum sínum.
Emily Blunt ætlar að njóta tímans með dætrum sínum. AFP

Breska leikkonan Emily Blunt hefur ákveðið að taka sér tímabundið hlé frá leiklistinni til að eyða frekari tíma með fjölskyldu sinni.

Blunt hefur átt mikilli velgengni að fagna í Hollywood allt frá því hún steig fyrst fram á sjónarsviðið í kvikmyndinni The Devil Wears Prada árið 2006, en hún hlaut meðal annars tilnefningu til Golden Globe–verðlaunanna fyrir hlutverk sitt. 

„Í ár hef ég ákveðið að taka mér hlé,“ sagði Blunt í hlaðvarpsþættinum Table for Two með Bruce Bozzi. „Ég vann og ferðaðist talsvert mikið á síðasta ári og nú er elsta barnið mitt orðið níu ára, þannig að við erum komin inn í síðasta eintöluárið.“

Blunt sem á tvær dætur, Hazel, níu ára, og Violet, sjö ára, með eiginmanni sínum, leikaranum John Krasinski, sagði einnig mikilvægt fyrir sig að vera til staðar fyrir dætur sínar og geta sinnt þörfum þeirra og upplifað öll stóru og litlu augnablikin sem koma aldrei aftur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert