Arnhildur og Alfreð gáfu dótturinni nafn

Arnhildur Anna Árnadóttir og Alfreð Már Hjaltalín ásamt dóttur sinni.
Arnhildur Anna Árnadóttir og Alfreð Már Hjaltalín ásamt dóttur sinni. Skjáskot/Instagram

Kraftlyftingakonan og þjálfarinn Arnhildur Anna Árnadóttir og kærasti hennar, Alfreð Már Hjaltalín heilsunuddari, hafa gefið dóttur sinni nafn. 

Dóttir Arnhildar og Alfreðs kom í heiminn 1. júní síðastliðinn og er fyrsta barn parsins.

Stúlkan fékk nafnið Úlfhildur Edda, en Arnhildur greindi frá nafninu í færslu á Instagram þar sem hún birti fallega mynd af parinu með dóttur sinni. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju með nafnið!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert