Fara án þess að kveðja móður sína

Britney Spears missti forræði yfir sonum sínum árið 2008. Í …
Britney Spears missti forræði yfir sonum sínum árið 2008. Í dag eru þeir 16 og 17 ára gamlir. Samsett mynd

Kevin Federline fyrrum eiginmaður og barnsfaðir Britney Spears er sagður ætla að flytja með strákana þeirra tvo til Havaí. 

Samkvæmt heimildum TMZ munu þeir ekki kveðja móður sína áður en þeir flytja.

Federline fer með fullt forræði yfir drengjunum sem eru 17 og 16 ára gamlir. Hann er sagður hafa kvatt drengina til þess að kveðja móður sína en vill hins vegar ekki þvinga þá til þess.

Þá er sagt að Federline sé feginn að hún ætli ekki að streitast á móti flutningunum með því að höfða dómsmál. Þetta sé drengjunum fyrir bestu.

„Britney elskar börnin sín og vill að þau séu hamingjusöm,“ segir vinur söngkonunnar.

Samband Spears við synina er stirt en á síðasta ári sagði hún að hluti af sér hefði dáið þegar hún hafði ekki séð þá í hálft ár og þeir mættu ekki í brúðkaup hennar og Sam Asghari.

Spears er í óða önn að undirbúa útgáfu ævisögu sinnar The Woman in Me sem kemur út í nóvember.

Britney Spears og Kevin Federline meðan allt lék í lyndi.
Britney Spears og Kevin Federline meðan allt lék í lyndi. AP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert