Leikkonan Sarah Jessica Parker vill að börnin sín skilji hvað það þýðir að vinna sér inn peninga. Telur hún það mikilvægt að tala hreint út við börnin sín þegar kemur að því að kenna þeim ábyrgð.
Parker talaði um mikilvægi þess að kenna börnum um gildi peninga í hlaðvarpsþættinum Table for Two, sem bandaríski miðilinn People greinir frá. Segir Parker að hún vilji að börnin sín skilji hvað það þýðir að vinna sér inn peninga, hvað þarf til að vinna sér inn peninga og hvert verðgildi þeirra sé. Parker á þrjú börn með eiginmanni sínum Matthew Broderick.
Parker vitnar meðal annars í hugmyndafræði Dolly Parton um að sjá um þarfir barnanna, en ekki allar óskir þeirra, og segist vera henni hjartanlega sammála. Með því læri börnin að greina á milli þess sem þau þurfa og þess sem þau vilja.