Birgitta Líf og Enok eiga von á barni

Enok og Birgitta Líf eiga von á barni.
Enok og Birgitta Líf eiga von á barni. Skjáskot/Instagram

Áhrifa­vald­ur­inn og markaðsstjór­inn Birgitta Líf Björns­dótt­ir og kær­asti henn­ar Enok Jóns­son eiga von á barni. Parið greindi frá gleðifréttunum á samfélagsmiðlum sínum í dag. 

Birgitta og Enok hafa notið lífsins í sólinni í sumar og birtu fallega mynd af sér sem tekin var í útlöndum þegar þau tilkynntu óléttuna. Enok heldur brosandi um maga Birgittu og er parið greinilega spennt fyrir komandi tímum. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar parinu til hamingju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert