Fjölgar í liði Margrétar Láru og Einars

Margrét Lára Viðarsdóttir er orðin fjögurra barna móðir.
Margrét Lára Viðarsdóttir er orðin fjögurra barna móðir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mar­grét Lára Viðars­dótt­ir, knatt­spyrn­u­stjarna og sál­fræðing­ur, og Ein­ar Örn Guðmunds­son sjúkraþjálfari eignuðust dóttur á dögunum. Stúlkan er fjórða barn hjónanna sem eiga fyrir þrjá drengi. 

„26.08.23 mætti stjarnan okkar skærasta,“ skrifar Margrét Lára á Instagram. „Við erum ótrúlega hamingjusöm með þessa mjög svo velkomnu viðbót í okkar geggjaða lið. Þakklæti er okkur efst í huga fyrir barnalánið okkar, við erum svo sannarlega rík. Keppnin um hver er besti stóri bróðirinn er formlega hafin og tekin alla leið, þannig að lillan okkar verður í góðum höndum alla tíð.“

Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert