Áttræður De Niro í göngutúr með krílið

Robert De Niro er sjö barna faðir.
Robert De Niro er sjö barna faðir. AFP

Stórleikarinn Robert De Niro átti ljúfan dag í faðmi hluta fjölskyldunnar síðastliðinn sunnudag. De Niro og kærasta hans, Tiffany Chen, kíktu með unga dóttur sína, Giu Virginiu, í göngutúr um götur New York-borgar, fæðingarstaðar leikarans.

Parið eignaðist dóttur sína í maí og er hún sjöunda barn leikarans, sem fagnaði 80 ára afmæli sínu nýverið.

Parið virtist afslappað til fara og með þægindin í fyrirrúmi. Samstilltu þau klæðnað sinn, en bæði klæddust þau kakíbuxum, ljósum stuttermabol og sólgleraugum. Chen ýtti Giu í fallegum og nettum ljósbrúnum vagni.

De Niro og Chen, 45 ára, byrjuðu að hittast árið 2021, en 34 ára aldursmunur er á parinu. Börn leikarans eru á aldursbilinu 4 1/2 mánaðar til 51 árs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert