Erfitt að leyfa börnunum að stofna reikning á samfélagsmiðlum

Matthew McConaughey á þrjú börn og er elsti sonur hans …
Matthew McConaughey á þrjú börn og er elsti sonur hans mættur á Instagram. AFP

Elsta barn leikarans Matthew McConaughey, Levi, fékk að stofna Instagram-reikning í sumar, eða þegar hann varð 15 ára gamall. McConaughey og eiginkona hans, Camilla, segja ákvörðunina hafa verið erfiða enda geti samfélagsmiðlar verið skuggalegur heimur. Leikarinn ræddi þetta og fleira í viðtali við tímaritið People nýverið.

Í viðtali sínu við People segir hinn 53 ára gamli McConaughey að þau hjónin hafi undirbúið son sinn vel og leyft honum að fylgjast með þeirra samfélagsmiðlanotkun og Instagram-reikningum til þess að skilja þennan heim örlítið betur. Segir hann þau hafa séð þroska og öryggi hjá unga drengnum og töldu hann því nógu stálpaðan til þess að byrja að deila sögu sinni með heiminum á netinu. 

„Hann er mjög yfirvegaður og flottur ungur maður,“ segir McConaughey. „Ég vona að heimurinn sjái sér fært að koma fram við hann á sama veg og hann kemur fram við heiminn.“

Levi hefur á örfáum dögum nælt sér í tæplega 270 þúsund fylgjendur á Instagram og hefur birt sjö færslur og þar á meðal myndskeið af þeim feðgum.

Leikarinn á tvö önnur börn með eiginkonu sinni, Vidu, 13 ára, og Livingston, 10 ára. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert