Sigurður og Lína Móey eignuðust stúlku

Sigurður Karlsson og Lína Móey Bjarnadóttir eignuðust stúlku hinn 7. …
Sigurður Karlsson og Lína Móey Bjarnadóttir eignuðust stúlku hinn 7. september.

Lína Móey Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Leigumanna ehf, eignaðist stúlkubarn með sambýlismanni sínum Sigurði Karlssyni, framkvæmdastjóri iCert, hinn 7. september. 

Parið deildi gleðitíðindunum með fylgjendum sínum á Instagram á föstudag. 

„Elsku litla fallega stelpan okkar Sigga fæddist í gær þann 7.sept. Hún kom lítil og nett í heiminn og fæðing gekk vel,“ skrifaði Lína Móey við færsluna. 

View this post on Instagram

A post shared by Lína Móey (@linamoey9)

Lína Móey missti eiginmann sinn, John Snorra Sigurjónsson, í febrúar 2021 þegar hann reyndi að komast fyrstur manna á topp fjallsins K2 að vetrarlagi. John Snorri var einn færasti fjallgöngumaður landsins. 

Lína Móey og John Snorri eiga tvo syni sem eru fimm og sjö ára gamlir. Auk þess átti hún dóttur fyrir sem er 22 ára gömul. Sigurður á tvö börn af fyrra sambandi, dóttur sem er tvítug og son sem er níu ára. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert