Mættu með dæturnar á Opna bandaríska

Hjónin sjást ekki oft með dætur sínar, en þau kjósa …
Hjónin sjást ekki oft með dætur sínar, en þau kjósa að halda börnum sínum utan sviðsljóssins. ANGELA WEISS

Það var sannkölluð fjölskyldustund hjá John Krasinski og Emily Blunt á föstudag, en leikarahjónin mættu með ungar dætur sínar á Opna bandaríska meistaramótið í tennis, eitt stærsta tennismót í heimi. Parið reynir allt hvað það getur til þess að halda börnum sínum utan sviðsljóssins, en Krasinski og Blunt eru þrátt fyrir það dugleg að njóta samverustunda ásamt dætrum sínum, Hazel og Violet. 

Leikarahjónin sátu í áhorfendastúkunni á hinum víðfræga Arthur Ashe-leikvangi í New York-borg á föstudag. Með í för voru dætur parsins, 9 og 7 ára. Fjölskyldan fylgdist með undanúrslitaleikjum karla og sást klappa ákaft í gegnum loturnar. 

Novak Djokovic frá Serbíu stóð uppi sem sigurvegari mótsins þegar hann sigraði Daniil Medvedev frá Rússlandi í úrslitaleiknum á sunnudag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert