Er litla hafmeyjan ófrísk?

Halle Bailey kynnti tónlistaratriði Måneskin ásamt systur sinni Chloe Bailey.
Halle Bailey kynnti tónlistaratriði Måneskin ásamt systur sinni Chloe Bailey. DIA DIPASUPIL

Söng- og leikkonan, Halle Bailey, hefur gefið óléttuorðrómi byr undir báða vængi. Bailey mætti íklædd víðum og flæðandi appelsínugulum kjól á nýafstaðna MTV-verðlaunahátíðina þar sem hún kynnti tónlistaratriði Måneskin ásamt systur sinni Chloe Bailey.

Aðdáendur stjörnunnar eru sannfærðir um að hún sé ófrísk. 

Samkvæmt heimildarmanni Page Six kaus Bailey að halda sig frá bleika dreglinum fyrir verðlaunahátíðina og heilsaði hátíðargestum aðeins með handabandi til þess að komast hjá faðmlögum. 

Bailey, sem vakti mikla athygli fyrr á árinu þegar hún lék Ariel í kvikmyndinni Litla hafmeyjan, hefur verið í sambandi með Youtube-stjörnunni DDG í tæp tvö ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert