Andrés og Ása Laufey eignuðust dóttur

Fjölskylda Andrésar Jónssonar og Ásu Laufeyjar Sæmundsdóttur stækkaði á dögunum.
Fjölskylda Andrésar Jónssonar og Ásu Laufeyjar Sæmundsdóttur stækkaði á dögunum. Skjáskot/Instagram

Hjónin Andrés Jónsson, almannatengill og eigandi Góðra samskipta, og séra Ása Laufey Sæmundsdóttir prestur eignuðust dóttur á dögunum.

Andrés deildi gleðifregnunum á Facebook-reikningi sínum þar sem hann birti fallega mynd af mæðgunum. 

„Við erum ofsalega glöð að vera búin að fá stelpuna okkar í heiminn. Hún er lítil en sterk og þegar orðin miðdepill tilverunnar,“ skrifaði hann við myndina.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert