Þorbjörn og Ása eignuðust dreng

Þorbjörn Þórðarson
Þorbjörn Þórðarson Ljósmynd/Aðsend

Þor­björn Þórðar­son, lögmaður og fyrr­ver­andi fréttamaður, og eiginkona hans, Ása Dagmar Jónsdóttir, eignuðust dreng í vikunni. Er þetta annað barn þeirra hjóna en sonurinn Tómas kom í heiminn árið 2020. 

Þorbjörn greinir frá komu drengsins á samfélagsmiðlum. Hann segist vera stoltur af Ásu sinni sem stóð sig eins og hetja í fæðingunni. Fjölskylduna er í skýjunum með litla guttann og stóri bróðir ánægður með nýja hlutverkið. 

Þegar fjölskylda stækkar þarf fleiri fermetra og fleiri herbergi. Nýlega settu hjónin íbúð sína á Hlíðarenda á sölu vegna komu barnsins. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim til hamingju með drenginn!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert