Mæðgurnar aftur saman í nærfatamyndatöku

Mæðgurnar Leni og Heidi Klum sáti fyrir í nýrri nærfataherferð …
Mæðgurnar Leni og Heidi Klum sáti fyrir í nýrri nærfataherferð Intimissimi á dögunum. Samsett mynd

Ofurfyrirsætan Heidi Klum og 19 ára dóttir hennar Leni Klum sátu aftur fyrir í auglýsingaherferð ítalska undirfatarisans Intimissimi á dögunum þrátt fyrir að hafa hlotið mikla gagnrýni fyrir myndir sem birtust í herferð merkisins síðasta vor.

Mörgum þótti myndirnar óviðeigandi og grófar, en Heidi segist vera stolt af myndunum og þykir gaman að sitja fyrir með dóttur sinni. 

„Léleg“ myndvinnsla gagnrýnd

Mæðgurnar deildu báðar myndum úr auglýsingaherferðinni á Instagram-reikningum sínum í gær. „Nýja herferðin okkar fyrir Intimissimi er hér!“ skrifuðu þær við myndirnar. 

Þótt margir hafi verið hrifnir og hrósað mæðgunum fyrir myndirnar var þó nokkuð um gagnrýni rétt eins og síðasta vor. Nú virðist gagnrýnin hins vegar aðallega snúa að „lélegri“ myndvinnslu sem láti mæðgurnar líkjast „plastdúkkum.“

„Hendurnar og axlirnar? Jafnvel ég get „photoshoppað“ betur (hef ekkert á móti konunum, þær eru yndislegar)“ skrifaði einn á meðan annar skrifaði: „Þetta er uppáhaldsvörumerkið mitt. Hins vegar lítur myndin mjög „photoshoppuð“ út ef ég á að vera heiðarleg og fyrirsætan lítur út fyrir að vera undir lögaldri ... það er ekki frábært.“

Þá hefur Heidi lokað fyrir öll ummæli á myndirnar sínar á Instagram. 

View this post on Instagram

A post shared by Leni Olumi Klum (@leniklum)

View this post on Instagram

A post shared by Heidi Klum (@heidiklum)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert