Ágúst og Elísabet eiga von á öðru barni

Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eiga von …
Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eiga von á sínu öðru barni saman. Ljósmynd/Aðsend

Ágúst Freyr Hallsson og Elísabet Metta Svan Ásgeirsdóttir eiga von á sínu öðru barni saman. Þau eru stofnendur og eigendur staðarins Maka'i þar sem þau selja acai-skálar sem hafa notið mikilla vinsælda bæði hér á landi og erlendis. 

Ágúst Freyr og Elísabet Metta deildu gleðifregnunum með sameiginlegri færslu á Instagram með yfirskriftinni: „2024“ og fallegu myndskeiði af óléttukúlunni. Fyrir eiga þau einn son, Viktor Svan, sem kom í heiminn árið 2018.

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert