Of gamall til að sinna kornabarni

Robert De Niro ásamt barnsmóður sinni, Tiffany Chen.
Robert De Niro ásamt barnsmóður sinni, Tiffany Chen. AFP

„Þetta barnauppeldi er erfiðara þegar maður er kominn á minn aldur,“ sagði hinn 80 ára gamli Robert De Niro í viðtali við The Guardian á dögunum. Leikarinn tók á móti sínu sjöunda barni fyrr á þessu ári með sambýliskonu sinni, Tiffany Chen. 

De Niro viðurkenndi að allt frá fæðingu dóttur hans og Chen fyrir rúmlega sex mánuðum síðan hafi sambýliskona hans séð um að sinna stúlkunni, Giu Virginiu Chen-De Niro, ásamt barnfóstrum parsins. „Ég styð við bakið á sambýliskonu minni en hún sér um öll stóru verkefnin,“ sagði Óskarsverðlaunaleikarinn. 

Parið sem hefur verið saman síðan 2021 kynntist við gerð kvikmyndarinnar The Intern árið 2015. De Niro fór með annað aðalhlutverkanna ásamt Anne Hathaway. Chen fór með lítið aukahlutverk í kvikmyndinni. 

Fjórar barnsmæður

De Niro varð fyrst faðir árið 1971 þegar hann og Diahne Abbott eignuðust dótturina Drenu, nú 52 ára. Auk hennar deilir De Niro tvíburasonunum Aaron og Julian, 27 ára með Toukie Smith og syni sínum Elliot, 25 ára og hinni 11 ára gömlu Helen með fyrrverandi eiginkonu sinni, Grace Hightower. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert