Ófrísk eftir tæplega eins árs samband

Ashley Benson á von á barni.
Ashley Benson á von á barni. Skjáskot/Instagram

Leikkonan Ashley Benson, sem er einna þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Pretty Little Liars, á von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum, olíuerfingjanum Brandon Davis. Parið byrjaði saman snemma á þessu ári og trúlofaði sig í júlí. 

„Hún er gengin fjóra mánuði á leið og hlakkar til að takast á við móðurhlutverkið,“ segir heimildarmaður Us Weekly. „Fjölskylda Benson er mjög ánægð fyrir hennar hönd. 

Ben­son var áður í sam­bandi með rapp­ar­an­um G-Eazy og of­ur­fyr­ir­sæt­unni Cara Deleving­ne.

Dav­is, 43 ára, er barna­barn ol­íujöf­urs­ins Mar­vin Dav­is og hef­ur átt í ástar­sam­bönd­um við leik­kon­urn­ar Mischa Bart­on og Drew Barrymore.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert