Hildur María og Sigurður eiga von á barni

Hildur María Leifsdóttir og Sigurður Jakob Helgason eiga von á …
Hildur María Leifsdóttir og Sigurður Jakob Helgason eiga von á sínu fyrsta barni saman. Samsett mynd

Fyrrverandi fegurðardrottningin og handboltakonan Hildur María Leifsdóttir á von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Sigurði Jakobi Helgasyni. 

Hildur María bar sigur úr býtum í Miss Universe Iceland árið 2016 og keppti fyrir Íslands hönd í Miss Universe ári síðar. 

Um helgina var afmæli Hildar Maríu fagnað í Geosea-sjóböðunum á Húsavík. Þau fögnuðu því einnig að hún væri gengin 21 viku á leið, en parið á von á stúlku. 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Hildur Maria (@hildurmariaa)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert