Annie Mist og Frederik eiga von á barni

Annie Mist og Frederik Ægidius.
Annie Mist og Frederik Ægidius. Ljósmynd/Aðsend

Crossfit-stjarnan Annie Mist Þórisdóttir og sambýlismaður hennar, Frederik Æg­idius, eiga von á sínu öðru barni. Parið greindi frá þessu á samfélagsmiðlum í gærkvöldi og hefur síðan þá hamingjuóskum rignt yfir fjölskylduna. 

Fyrir eiga þau Annie og Frederik dótturina Freyju Mist sem kom í heiminn árið 2020. Von er á nýju barni þann 2. maí næsta vor. „3 verða að 4,“ skrifaði Annie við mynd á Instagram. 

Það er nóg pláss fyrir viðbótina á framtíðarheimili fjölskyldunnar en Smartland greindi frá því í vor að þau Annie og Frederik hefðu fest kaup á fokheldu húsi í Garðabæ. Það mun vafalaust fara vel um stækkandi fjölskyldu í húsinu. 

Fjölskylduvefur mbl.is óskar fjölskyldunni til hamingju. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert