Bessi og Sara Lind eignuðust dóttur

Bessi Jóhannsson og Sara Lind Teitsdóttir eignuðust dóttur.
Bessi Jóhannsson og Sara Lind Teitsdóttir eignuðust dóttur. Skjáskot/Instagram

Bessi Jóhannsson og Sara Lind Teitsdóttir, eigandi Noel Studios, eignuðust dóttur þann 23. október síðastliðinn.

Stúlkan er fyrsta barn Söru Lindar og Bessa saman, en fyrir á Sara Lind soninn Leon Myrkva sem kom í heiminn 2. september 2020.

Í maí síðastliðnum greindu Bessi og Sara Lind frá því á Instagram að fjölskyldan væri að stækka og að stúlka væri á leiðinni.

Í dag, miðvikudag, tilkynntu þau svo að dóttir þeirra væri komin í heiminn með sameiginlegri færslu á Instagram með yfirskriftinni: „Fallegust í heimi mætt. 23.10.23.“ 

Fjölskylduvefurinn óskar þeim innilega til hamingju!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert