Lína Móey bað Sigurðar þegar dóttir þeirra var skírð

Sigurður Karlsson og Lína Móey Bjarnadóttir eru búin að skíra …
Sigurður Karlsson og Lína Móey Bjarnadóttir eru búin að skíra dóttur sína.

Lína Móey Bjarna­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Leigu­manna ehf, og Sigurður Karlsson framkvæmdastjóri Ilva eignuðust dóttur 7. september.

„Litla fallega stelpan okkar fékk nafnið Sóley Lív Sigurðardóttir þann 13 október, Siggi var líka mjög heppinn og fékk hring, öllum að óvörum,“ segir Lína Móey á Facebook-síðu sinni. 

Lína Móey missti eig­in­mann sinn, John Snorra Sig­ur­jóns­son, í fe­brú­ar 2021 þegar hann reyndi að kom­ast fyrst­ur manna á topp fjalls­ins K2 að vetr­ar­lagi. John Snorri var einn fær­asti fjall­göngumaður lands­ins. 

Lína Móey og John Snorri eiga tvo syni sem eru fimm og sjö ára gaml­ir. Auk þess átti hún dótt­ur fyr­ir sem er 22 ára göm­ul. Sig­urður á tvö börn af fyrra sam­bandi, dótt­ur sem er tví­tug og son sem er níu ára. 



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert