Tinna Alavis eignaðist son

Tinna Alavis ásamt dóttur sinni Ísabellu.
Tinna Alavis ásamt dóttur sinni Ísabellu. mbl.is/Tinna Alavis

Áhrifavaldurinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Tinna Alavis eignaðist son á dögunum. Fyrir á hún eina dóttur, Ísabellu Birtu, með Unnari Bergþórssyni. 

Tinna deildi gleðifregnunum á Instagram-reikningi sínum um helgina og birti fallegar myndir af syni sínum. „Elsku fallegi strákurinn okkar er kominn í heiminn. Ég er yfir mig ástfangin af honum,“ skrifaði hún í færslunni.

Tinna hefur gert það gott sem bloggari á síðustu árum en hún varð fyrst þekkt þegar hún hafnaði í öðru sæti í Ungfrú Ísland árið 2003. 

Fjölskylduvefurinn óskar fjölskyldunni innilega til hamingju!

View this post on Instagram

A post shared by Tinna Alavis (@alavis.is)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert