Komin heim af spítalanum

Kourtney Kardashian og Travis Barker á Grammy-verðlaunahátíðinni á síðasta ári.
Kourtney Kardashian og Travis Barker á Grammy-verðlaunahátíðinni á síðasta ári. AFP

Raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian er farin heim af spítalanum eftir að hafa tekið á móti syninum Rocky með eiginmanni sínum Travis Barker. 

Sonur Kardashian og Barker kom í heiminn síðastliðna helgi, en drengurinn er fyrsta barn þeirra hjóna saman.

Fyrir á Kardashian þrjú börn með fyrrverandi kærasta sínum Scott Disick, þau Reign, Mason og Penelope, Þá á Barker soninn Landon, dótturina Alabama og stjúpdótturina Atiana De La Hoya með fyrrverandi eiginkonu sinni Shönnu Moakler. 

Myndir náðust af Kourtney yfirgefa spítalann í Los Angeles, en hún sat í farþegasæti svartrar lúxusbifreiðar sem Barker keyrði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert