Birnir og Vaka orðin foreldrar

Birnir Sigurðarson og Vaka Njálsdóttir eignuðust dóttur.
Birnir Sigurðarson og Vaka Njálsdóttir eignuðust dóttur. Ljósmynd/Skjáskot Instagram

Tónlistarmaðurinn Birnir Sigurðarson og Vaka Njálsdóttir, sem vinnur í viðskiptaþróun fyrir Nova, eignuðust sitt fyrsta barn nýverið. Þau tóku á móti stúlkubarni hinn 2. nóvember síðastliðinn. Birnir og Vaka greindu frá óléttunni í júní á Instagram.

Birnir hefur verið að gera framúrskarandi hluti á tónlistarsviðinu frá árinu 2016. Hann hef­ur síðan þá gefið út hvern smell­inn á fæt­ur öðrum. Vaka var með hlaðvarpið Þegar ég verð stór þegar þau Birn­ir hitt­ust fyrst. Þegar hún bauð hon­um í af­mælið sitt fóru hjólin að snú­ast. Í dag sér Vaka um fríðinda­klúbb­inn og Nova-appið hjá síma­fyr­ir­tæk­inu.

Birn­ir og Vaka voru gest­ir í Betri helm­ingn­um með Ása en hægt er að hlusta á þátt­inn á hlaðvarpsvef mbl.is.

Fjöl­skyld­an á mbl.is ósk­ar þeim til ham­ingju með frumburðinn! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert